Íslandslyftur voru stofnaðar árið 2000 af reyndum lyftusérfræðingum, þeim Helga Skúla Helgasyni og Ingólfi Kristjánssyni. Fyrirtækið býður alla almenna lyftuþjónustu, þ.e.a.s. sölu á öllum útfærslum nýrra lyftna, endurnýjun á eldri lyftum auk eftirlits- og viðgerðaþjónustu. Íslandslyftur hafa á undanförnum árum sett upp flest allar lyftur í nýjum eða nýuppgerðum hótelum á höfuðborgarsvæðinu, má þar nefna Nordica Hotel, Hótel 101, Hótel Plaza og Grand Hótel Aðalstræti 16. Önnur verkefni Íslandslyftna á undanförnum árum eru Marel í Garðabæ, Barnaspítali Hringsins, Vöruhótel Eimskipa (lyfta og glerlyftugöng) og ný lyfta í húsnæði Arkitekta- og verkfræðingafélags Íslands.
Fyrirtækið leggur megin áherslu á lyftur frá Otis sem er langstærsti lyftuframleiðandi í heiminum. Otis eru þekktir fyrir vandaða vöru og góða eftirþjónustu. Íslandslyftur tóku við Otis umboðinu á Íslandi árið 2003 og hafa frá þeim tíma náð góðum árangri í sölu og þjónustu. Á árinu 2004 slógu Íslandslyftur sölumet á Otis lyftum á Íslandi frá upphafi.
Otis er elsti (síðan 1850) og virtasti lyftuframleiðandinn í heiminum. Á þeirra vegum eru um 60 þúsund starfsmenn í öllum heimsálfum og 1,3 milljónir lyftna í þjónustu.
Eigendi Íslandslyftna er Helgi Skúli Helgason. Hann er rafvirki að mennt og hefur unnið við flest er viðkemur lyftum síðastliðin 14 ár. Hann sér um sölumál fyrirtækisins og er yfirmaður uppsetninga á nýjum lyftum frá Íslandslyftum. Helgi starfaði við lyftuþjónustu hjá Bræðrunum Ormsson í sex ár áður en hann stofnaði Íslandslyftur. Hann hefur þar af leiðandi mikla reynslu á þeim lyftubúnaði sem Íslandslyftur þjónustar.
Eigandi Íslandslyftna eru viðurkenndir af Vinnueftirliti Ríkisins til að hafa umsjón með lyftum og þeir leggja metnað sinn í að veita viðskiptavinum faglega og örugga þjónustu.