Vörur og þjónusta

Íslandslyftur ehf. eru með um fjögur hundruð lyftur í þjónustu sinni frá hinum ýmsu framleiðendum. Fyrirtækið sinnir lögbundnu þjónustueftirliti á lyftum og alhliða viðgerðar- og neyðarþjónustu bæði á höfuðborgarsvæðinu sem og úti á landi. Umboðsmenn eru á Akureyri, Egilstöðum og í Vestmannaeyjum. Fyrirtækið hefur fyrirliggjandi fjölbreytt úrval vara- og aukahluta í flestar gerðir lyfta.

Íslandslyftur eru viðurkenndar af Vinnueftirliti ríkisins til að hafa umsjón með lyftum og öðru því tengdu og leggja þeir metnað sinn í að veita viðskiptavinum faglega og örugga þjónustu

Fyrirtækið býður uppá vandaðar og öruggar fólks- og vörulyftur frá virtum framleiðendum eins og Otis sem er mest seldi lyftuframleiðandi í heimi. Auk þess býður fyrirtækið upp á rúllustiga frá Otis, pallalyftur frá Aritco og BC Lift, sætislyftur í stiga og baðlyftur frá Minivator, bílastæðislyftur frá DBL Park, matarlyftur frá SKG og neyðarsíma í lyftur frá FåltCom.

Fréttir

Breytt heimilisfang
meira

Bílastæðislyfta til sölu
meira