Fólks- og vörulyftur

Smelltu hérna til að skoða bæklinga
Smelltu hérna til að skoða myndir

Íslandslyftur eru með umboð fyrir fólks- og vörulyftur frá hinum virta framleiðanda Otis sem er elsti og stærsti lyftuframleiðandi í heimi. Otis er þekkt fyrir vandaða og örugga vöru en gífurleg þróun hefur orðið í framleiðslu hefðbundinna sem og sérhannaðra lyftna.


Auk þess býður Otis upp á rúllustiga og rennibönd. Hægt er að velja úr fjölbreyttum útfærslum á klæðningu og útliti allt eftir áherslum viðskiptavina hverju sinni. Hefðbundnar útfærslur eru með stál-, viðar, eða litaklæðningum og hægt er að fá útsýnislyftu úr gleri.


Vélarrýmislaus lyfta
Vélarrýmislaus lyfta er byltingarkennd nýjung sem kom á markað árið 2000 og markaði þá tímamót í nær hundrað ára sögu lyftutækni. Lyftan er hönnuð fyrir tveggja til þrjátíu hæða byggingar, hún er umhverfisvæn með tilliti til orkunotkunar og smurningar. Það sem gerir vélarrýmislausa lyftu frábrugðna hefðbundinni víralyftu er ný tækni sem samanstendur af endurhönnuðum mótor sem er fyrirferðalítill og flatköplum sem gera það að verkum að hægt er að staðsetja lyftubúnaðinn inni í lyftugöngunum.  Því þarf ekki sérstakt vélarrými fyrir lyftuna. Flatkaplarnir stuðla að nákvæmari og mýkri keyrslu lyftunnar, þeir eru umhverfisvænir, öruggari en hefðbundnir lyftuvírar og þurfa lágmarksviðhald.



Málsetningar


Burðar-geta
Kg

Lyftu-klefi
B x D mm

Hurðar-opnun



Opnunar-breidd
mm

Lyftu-göng Breidd mm


Lyftugöng Dýpt
mm

Útgangur á sömu hlið

Útgangur á tveim hliðum

*630kg
8 manns

1100 x 1400  

Hliðaropnun

900

1700

1800

2030

Miðjuopnun

900

1970

1750

1940

**1000kg
13 manns

1100 x 2100  

Hliðaropnun

900

1700

2500

2730

Miðjuopnun

900

1970

2500

2650


  *630 kg lyftan uppfyllir aðgengi fyrir fatlaða
**1000 kg lyftan uppfyllir lágmarksstærð á lyftum í íbúðarhúsnæði, 4 hæðir og hærra