Hjólastólalyftur

 

Pallalyfturnar í stiga frá danska fyrirtækinu BC lift eru hentugar innan- sem utandyra en þær eru þekktar fyrir öryggi, þægindi og stílhreina hönnun. Pallalyftan er hugsuð fyrir hjólastóla eða hreyfihamlaða sem og til vöruflutninga. 

Lyftan er einstaklega þægileg í notkun og uppfyllir ströngustu gæðakröfur um öryggi og notkunareiginleika. Lyftan festist annað hvort á brautir sem eru festar á vegg í stiganum eða á stöpla sem eru festir á tröppur. Þegar hún er ekki í notkun er auðvelt að fella hana upp að vegg.  Stjórnborðum er komið fyrir á hæðum en hægt er að kalla á lyftuna, jafnvel þegar hún er uppfelld.  Lyftunni er stjórnað með stýripinna sem er auðveldur og þægilegur í notkun.




Lyftan fæst í tveimur stærðum 800 mm x 1000 mm eða 750 mm x 900 mm  (B x L) og getur aðgengi upp á lyftu verið frá þrem hliðum. Rampur er á hliðum lyftunnar sem auðveldar aðgengi. Hægt er að fá aukabúnað eins og niðurfellanlegt sæti, fjarstýringu, auk þess er val um nokkra liti. Einnig er hægt að sérsmíða pall og ramp eftir þörfum þar sem aðstæður eru sérstakar.  Staðlaður litur lyftunnar er hvítur.