Íslandslyftur ehf. voru stofnaðar árið 2000 af reyndum lyftusérfræðingum. Eigendur hafa yfir tólf ára reynslu af flestu er viðkemur lyftum. Hjá Íslandslyftum starfar fjölbreyttur hópur fólks með töluverða reynslu af lyftum. Hópurinn samanstendur af vélfræðingum, flugvirkjum, rafvirkjum og reyndum starfsmönnum við uppsetningar á lyftum, ásamt starfsfólki á skrifstofu. Hjá fyrirtækinu starfa 8 manns.
Otis-umboðið á Íslandi
Fyrirtækið Íslandslyftur býður upp á alla almenna lyftuþjónustu sem og sölu- og þjónusturáðgjöf á margvíslegum útfærslum nýrra lyftna sem eru: fólkslyftur, vörulyftur, sérhannaðar lyftur, hjólastólalyftur, þjónustulyftur, bílastæðalyftur og lyftur í heimahús. Íslandslyftur keyptu árið 2005 lyftudeild Ormsson og tóku þar með yfir eftirlits- og viðgerðarþjónustu á lyftum frá hinum ýmsu framleiðendum. Íslandslyftur leggja megináherslu á lyftur frá Otis sem er elsti lyftuframleiðandi í heimi en fyrirtækið tók við Otis-umboðinu á Íslandi árið 2003. Fyrirtækið er einnig með vörur frá öðrum þekktum framleiðendurm m.a. Aritco, BC lift, Minivator og SKG. Auk þess bjóða Íslandslyftur upp á endurnýjun á eldri lyftum, uppsetningu aukabúnaðar og eftirlits- og viðgerðaþjónustu.
Nýjar lyftur og endurbætur á lyftum
Íslandslyftur hafa á undanförnum árum sett upp margar lyftur í nýjum eða nýuppgerðum hótelum á höfuðborgarsvæðinu, ennfremur í nýbyggingar fjölbýlishúsa bæði á höfuðborgarsvæðinu sem og úti á landi. Önnur verkefni Íslandslyftna eru til dæmis Höfuðstöðvar N1, Barnaspítali Hringsins, Vöruhótel Eimskipa (lyfta og glerlyftugöng) og ný lyfta í húsnæði Arkitekta- og verkfræðingafélags Íslands. Einnig hafa Íslandslyftur sett upp lyftur í fjölmörgum grunnskólum landsins, svo sem Hamraskóla og Vogaskóla í Reykjavík og Víðistaðaskóla í Hafnarfirði. Dæmi um verkefni fyrir félagasamtök eru: Íþróttafélag Vals, Taflfélag Reykjavíkur og Tennis- og badmintonfélag Reykjavíkur.
Íslandslyftur hafa einnig unnið við endurbætur á fjölmörgum lyftum bæði sem hluta af heildarlausn eða sem viðbætur, t.d. neyðarbúnað.
Á árinu 2007 settu starfsmenn Íslandslyftna upp rúmlega 60 lyftur og lyftubúnað þeim tengdum. Gert er ráð fyrir verulegri aukningu á árinu 2008.
Fagleg og örugg þjónusta
Íslandslyftur eru viðurkenndar af Vinnueftirliti ríkisins til að hafa umsjón með lyftum og búnaði þeim tengdum og fyrirtækið leggur metnað sinn í að veita viðskiptavinum faglega og örugga þjónustu.