top of page

Íslandslyftur eru með yfir fimm hundruð lyftur í þjónustu sinni frá hinum ýmsu framleiðendum.

Fyrirtækið sinnir lögbundnu þjónustueftirliti á lyftum og alhliða viðgerðar- og neyðarþjónustu bæði á höfuðborgarsvæðinu sem og úti á landi. Umboðsmenn eru á Akureyri, Egilstöðum, Eskifirði og í Vestmannaeyjum. Fyrirtækið hefur fyrirliggjandi fjölbreytt úrval vara- og aukahluta í flestar gerðir lyfta.


Íslandslyftur eru viðurkenndar af Vinnueftirliti ríkisins til að hafa umsjón með lyftum og búnaði þeim tengdum og fyrirtækið leggur metnað sinn í að veita viðskiptavinum faglega og örugga þjónustu.

Íslandslyftur býður uppá vörur frá þekktum framleiðendum m.a. Kleemann, Aritco, Ascendor, Liftup, Pollock, Handicare, Hymo og SKG.  Auk þess bjóða Íslandslyftur upp á endurnýjun á eldri lyftum, uppsetningu aukabúnaðar og eftirlits- og viðgerðaþjónustu.  

Fagleg og örugg þjónusta

ÍSLANDSLYFTUR EHF

Pressing the Elevator Button
Hvar erum við?

Smiðjuvegur 28, Kópavogur, Iceland

+354 568-7600

  • facebook
bottom of page